ACT GRUNNUR 15. sept 2022 (4x vikulega á FIM 16:00-19:00-samtals 4 skipti)
Acceptance and Commitment Therapy (ACT) er örast vaxandi sálfræðilega meðferðin í heiminum í dag og ekki af ástæðulausu. ACT, sem partur af stærri byltingu í framkvæmd sálfræðilegrar meðferðar, hefur gjörbreytt lífi bæði skjólstæðinga og meðferðaraðila á margan hátt og haft mikil áhrif á sálfræði sem fræðigrein. ACT hefur blómstrað sem rannsóknargrunnur og klínísk meðferð um allan heim. ACT nýtur ekki aðeins síaukinna vinsælda sem halda áfram að vaxa, heldur virðist aðferðin hafa sérstök og persónuleg áhrif á fólk. Ólíkt nánast öllum öðrum klínískum aðferðum þá er ACT í raun ekki ein tiltekin klínísk tækni, heldur umfangsmikill og sveigjanlegur meðferðarrammi sem byggður er á sterkum vísindalegum grunni. Rannsóknir hafa sýnt að ACT má nota með afar góðum árangri við meðferð á stærstum hluta algengra umkvartana fólks sem leitar sér meðferðar.
Í ACTGRUNNI leiðir Haukur Sigurðsson sálfræðingur þig í gegnum kenningarlegar og heimspekilegar undirstöður ACT meðferðarformsins, kynnir ACT módelið og klínískar aðferðir sem byggja á því. Þátttakendur fá tækifæri til að ganga í gegnum æfingar þar sem þeir fá beina persónulega reynslu af áhrifaríkum ACT aðferðum sem hreyfa við sálrænum ferlum í átt að auknum sálrænum sveigjanleika, árangri og fyllingu í lífinu.
Eftir að hafa lokið ACTGRUNNI verður þú með góðan grunnskilning á þeim kenningum og þeim heimspekilegu forsendum sem ACT byggir á og grunnþjálfun í völdum lykilaðferðum meðferðarinnar.
ACTGRUNNUR er góður kostur fyrir þig ef:
Þú ert að vinna við ráðgjöf eða meðferð með fólki til þess að hjálpa þeim að virkja hæfileika sína, skapa innihaldsríkt líf og frelsi
Þú vilt rifja upp megin lögmál ACT og heimspekilegan grunn sem merðferðarkerfið byggir á.
ACT er nýtt fyrir þér og þú vilt læra ACT frá grunni og byrja að byggja upp meðferðarfærni í grunnaðferðum ACT
Þú hefur reynslu af ACT sem meðferðaraðili en vilt rifja upp á hvaða megin vísindaheimspekilegum stoðum ACT stendur og rifja upp eða bæta við þig grunnaðferðum ACT meðferðar
Þú vilt tileinka þér meðferðarform sem gerir þér kleift að sjá hvað er að virka með því að fylgjast beint með skjólstæðingum þínum og ganga lengra heldur en hefðbundnar aðferðir sem byggja á greiningu geðraskana og ströngum meðferðaraðgerðalýsingum
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem starfa við meðferð eða stunda nám sem miðar að slíkum störfum. Æskilegt er að þátttakendur hafi grunnþekkingu á atferlisfræðilegum kenningum/lögmálum sálfræðinnar og séu í virkri klínískri eða ráðgjafarvinnu með fólki.
Efnistök námskeiðsins
Inngangur að ACT
Gagnreynd meðferð síðustu áratugi og ferlimiðuð meðferð
Hugmyndafræðilegur/heimspekilegur grunnur ACT
Meðferðarsambandið
Sex lögmál/ferli ACT módelsins sem hafa áhrif á sálrænan sveigjanleika/ósveigjanleika (ACT módelið útskýrt)
Viðtaka upplifana
Hugræn aðgreining
Tenging við núverandi stund
Yfirskilvitleg sjálfsvitund
Gildi
Skuldbundið atferli
Klínísk merki um ósveigjanleika í öllum meginþáttum ACT módelsins
Klínískar aðferðir til að hreyfa við öllum sex ferlum ACT módelsins til að skapa sálrænan sveigjanleika
Nánari tilhögun námskeiðsins
Námskeiðið verður haldið vikulega í fjögur skipti á fimmtudögum frá kl. 16:00 til 19:00 frá 15. sept 2022. Við verðum í fyrirlestrasal Sálfræðistofunnar Höfðabakka, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík. Kennslutilhögun verður sambland af fyrirlestrarformi, sýnikennslu, beinum æfingum í ACT aðferðum, svöruðum spurningum úr sal, umræðum, lestri á milli tíma og skriflegra æfinga.
Hvað fyrri þátttakendur segja um námskeiðið
Hauki tókst einstaklega vel til við að ná yfir umfangsmikið efni á skömmum tíma. Hann kom efninu frá sér á hátt sem hreyfði við mér persónulega og hafði áhrif á hvernig ég kem til með að hugsa um ákveðin viðfangsefni. Á þeim 12 klst sem námskeiðið stóð yfir öðlaðist ég skilning á kenningarlegum bakrunni aðferðarinnar og helstu hugtökum, ásamt því að fá klínísk verkfæri sem ég get notað í vinnu med mínum skjólstæðingum. Ég get heilshugar mælt með námskeiðinu hans Hauks og mun halda áfram að mennta mig innan ACT.
Að sækja námskeið hjá Hauki í ACT- grunni var í senn lærdómsríkt og gefandi fyrir mig persónulega. Haukur náði ekki bara að koma efninu vel til skila þannig að góður grunnur er lagður að notkun ACT heldur tókst honum að ná dýptinni sem nauðsynleg er í meðferðavinnu á afar fallegan og persónulegan hátt. Námið hafði gott flæði milli fræðilega hluta og verkefna og var Haukur óspar á að gefa góð dæmi um hvernig hann notar ACT í meðferðavinnu og þannig náðist góð tenging milli fræðilega og praktíska hlutans. Ef Haukur biði upp á framhaldsnámskeið myndi ég hiklaust skrá mig á það.
Ég sótti námskeiðið ACT – grunnur hjá Hauki og get af heilum hug mælt með því fyrir meðferðaraðila. Strax í kjölfar fyrsta tímans hjá Hauki var ég komin með tól í hendurnar sem ég gat nýtt mér í meðferð bæði með börnum og fullorðnum og það bættist bara í verkfærakistuna eftir því sem leið á námskeiðið. Haukur gerði efninu vel skil og veitti þátttakendum mikilvægan grunn í meðferðarforminu. Ég lauk námskeiðinu með tilhlökkun yfir því að geta nýtt það mikið í mínu starfi sem sálfræðingur.
Ég skráði mig á námskeiðið ACT-grunnur hjá Hauki eftir að hafa kynnt mér það stuttlega. Góð ákvörðun það, því þrátt fyrir fræðilega nálgun í upphafi varð námskeiðið strax persónulegt og náði til mín. Haukur hefur einstakt lag á að einfalda og útskýra hlutina á einlægan hátt og gefa dæmi um hvernig nýta má hinar ýmsu æfingar í verki. ACT er nálgun sem gefur meðferðaraðilum frelsi til að nýta það sem hentar hverju sinni og er frábær og dýrmæt viðbót í verkfærakistuna. Ég mun klárlega nýta mér framhaldsnamskeið hjá Hauki ef það verður í boði.
Kristín Heimisdóttir, sálfræðingu
Persónuleg skilaboð frá Hauki
Ég giska á að þú sért að vinna við meðferð vegna þess að þú vilt hjálpa fólki að gera breytingar sem stuðla að auknum árangri og fyllingu lífins. Til þess að ná sem bestum árangri í meðferð þá er nauðsynlegt að stíga út fyrir hina hefðbundnu aðferðarfræði þar sem áhersla er fyrst og fremst á að draga úr einkennum.
Klínísk sálfræði hefur í allt of langan tíma byggt á þeirri hugmynd að best sé að koma fram við mannlega þjáningu sem sjúkdóm sem þarf að meðhöndla í þeim tilgangi að draga úr einkennum. Að mínu mati hefur þessi hugmynd gengið sér til húðar enda fjöldi rannsókna undanfarna áratugi sem benda til að klínískar aðferðir sem byggðar eru á þessum hugmyndafræðilega grunni skili ekki þeim árangri sem ætlast var til.
ACT byggir á öðrum og mannlegri grunni þar sem ekki er komið fram við þjáningu fólks sem einkenni sjúkdóma. Áherslan er á að greina mikilvæg virk ferli í samhengi hvers einstaklings fyrir sig sem hægt er að hreyfa við með aðferðum ACT og þannig færa fólk í átt að auknum sálrænum sveigjanleika, árangri og lífi sem er þess virði að lifa. Rannsóknir sýna að ACT er gagnreynt meðferðarform og skilar oft betri langtímaárangri en hinar hefðbundnu klínísku aðferðir.
Ég er þeirrar skoðunar að við hjálpum fólki best með aðferðum sem stuðla að dýrmætu og innihaldsríku lífi og efla færni til að taka á móti öllum upplifunum sem slíku lífi fylgja, líka þeim þjáningarfullu.
Þess vegna hef ég lagt áherslu á að mennta mig og þjálfa í ACT, að efla sálrænan sveigjanleika í mínu eigin lífi með aðferðum ACT og þess vegna býð ég þér upp á þetta námskeið svo þú getir beint skjólstæðingum þínum og þér sjálfum/sjálfri í átt að innihaldsríkara og virkara lífi.