ACT grunnur. Vefnámskeið fyrir fagfólk í ACT meðferðarforminu.

ACT GRUNNUR NETNÁMSKEIÐ 8. FEBRÚAR 2023 (4x vikulega á MIÐ 13:00-16:00-samtals 4 skipti)

Acceptance and Commitment Therapy (ACT) er örast vaxandi sálfræðilega meðferðin í heiminum í dag og ekki af ástæðulausu. ACT, sem partur af stærri byltingu í framkvæmd sálfræðilegrar meðferðar, hefur gjörbreytt lífi bæði skjólstæðinga og meðferðaraðila á margan hátt og haft mikil áhrif á sálfræði sem fræðigrein. ACT hefur blómstrað sem rannsóknargrunnur og klínísk meðferð um allan heim. ACT nýtur ekki aðeins síaukinna vinsælda sem halda áfram að vaxa, heldur virðist aðferðin hafa sérstök og persónuleg áhrif á fólk. Ólíkt nánast öllum öðrum klínískum aðferðum þá er ACT í raun ekki ein tiltekin klínísk tækni, heldur umfangsmikill og sveigjanlegur meðferðarrammi sem byggður er á sterkum vísindalegum grunni. Rannsóknir hafa sýnt að ACT má nota með afar góðum árangri við meðferð á stærstum hluta algengra umkvartana fólks sem leitar sér meðferðar.

Í ACTGRUNNI leiðir Haukur Sigurðsson sálfræðingur þig í gegnum kenningarlegar og heimspekilegar undirstöður ACT meðferðarformsins, kynnir ACT módelið og klínískar aðferðir sem byggja á því. Þátttakendur fá tækifæri til að ganga í gegnum æfingar þar sem þeir fá beina persónulega reynslu af áhrifaríkum ACT aðferðum sem hreyfa við sálrænum ferlum í átt að auknum sálrænum sveigjanleika, árangri og fyllingu í lífinu.

Eftir að hafa lokið ACTGRUNNI verður þú með góðan grunnskilning á þeim kenningum og þeim heimspekilegu forsendum sem ACT byggir á og grunnþjálfun í völdum lykilaðferðum meðferðarinnar.


 

ACT GRUNNUR ER GÓÐUR KOSTUR FYRIR ÞIG EF:

  • Þú ert að vinna við ráðgjöf eða meðferð með fólki til þess að hjálpa þeim að virkja hæfileika sína, skapa innihaldsríkt líf og frelsi
  • Þú vilt rifja upp megin lögmál ACT og heimspekilegan grunn sem merðferðarkerfið byggir á.
  • ACT er nýtt fyrir þér og þú vilt læra ACT frá grunni og byrja að byggja upp meðferðarfærni í grunnaðferðum ACT
  • Þú hefur reynslu af ACT sem meðferðaraðili en vilt rifja upp á hvaða megin vísindaheimspekilegum stoðum ACT stendur og rifja upp eða bæta við þig grunnaðferðum ACT meðferðar
  • Þú vilt tileinka þér meðferðarform sem gerir þér kleift að sjá hvað er að virka með því að fylgjast beint með skjólstæðingum þínum og ganga lengra heldur en hefðbundnar aðferðir sem byggja á greiningu geðraskana og ströngum meðferðaraðgerðalýsingum

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem starfa við meðferð eða stunda nám sem miðar að slíkum störfum. Æskilegt er að þátttakendur hafi grunnþekkingu á atferlisfræðilegum kenningum/lögmálum sálfræðinnar og séu í virkri klínískri eða ráðgjafarvinnu með fólki.


Efnistök námskeiðsins

  • Inngangur að ACT
  • Gagnreynd meðferð síðustu áratugi og ferlimiðuð meðferð
  • Hugmyndafræðilegur/heimspekilegur grunnur ACT
  • Meðferðarsambandið
  • Sex lögmál/ferli ACT módelsins sem hafa áhrif á sálrænan sveigjanleika/ósveigjanleika (ACT módelið útskýrt)
    • Viðtaka upplifana
    • Hugræn aðgreining
    • Tenging við núverandi stund
    • Yfirskilvitleg sjálfsvitund
    • Gildi
    • Skuldbundið atferli
  • Klínísk merki um sálrænan ósveigjanleika/sveigjanleika í öllum meginþáttum ACT módelsins
  • Klínískar aðferðir til að hreyfa við öllum sex ferlum ACT módelsins til að skapa sálrænan sveigjanleika

Nánari tilhögun námskeiðsins

Námskeiðið verður haldið á netinu vikulega í fjögur skipti á miðvikudögum frá kl. 13:00 til 16:00 og byrjar 8. febrúar 2023. Kennslutilhögun verður sambland af fyrirlestrarformi, sýnikennslu, beinum æfingum í ACT aðferðum, svöruðum spurningum, umræðum, lestri á milli tíma og skriflegra æfinga. Aðgangur að kennsluefni verður í gegnum Google Classroom en aðgangsupplýsingar verða sendar nokkrum dögum áður en námskeiðið hefst.


Hvað fyrri þátttakendur segja um námskeiðið


Persónuleg skilaboð frá Hauki

Ég giska á að þú sért að vinna við meðferð vegna þess að þú vilt hjálpa fólki að gera breytingar sem stuðla að auknum árangri og fyllingu lífins. Til þess að ná sem bestum árangri í meðferð þá er nauðsynlegt að stíga út fyrir hina hefðbundnu aðferðarfræði þar sem áhersla er fyrst og fremst á að draga úr einkennum.

Klínísk sálfræði hefur í allt of langan tíma byggt á þeirri hugmynd að best sé að koma fram við mannlega þjáningu sem sjúkdóm sem þarf að meðhöndla í þeim tilgangi að draga úr einkennum. Að mínu mati hefur þessi hugmynd gengið sér til húðar enda fjöldi rannsókna undanfarna áratugi sem benda til að klínískar aðferðir sem byggðar eru á þessum hugmyndafræðilega grunni skili ekki þeim árangri sem ætlast var til.

ACT byggir á öðrum og mannlegri grunni þar sem ekki er komið fram við þjáningu fólks sem einkenni sjúkdóma. Áherslan er á að greina mikilvæg virk ferli í samhengi hvers einstaklings fyrir sig sem hægt er að hreyfa við með aðferðum ACT og þannig færa fólk í átt að auknum sálrænum sveigjanleika, árangri og lífi sem er þess virði að lifa. Rannsóknir sýna að ACT er gagnreynt meðferðarform og skilar oft betri langtímaárangri en hinar hefðbundnu klínísku aðferðir. 

Ég er þeirrar skoðunar að við hjálpum fólki best með aðferðum sem stuðla að dýrmætu og innihaldsríku lífi og efla færni til að taka á móti öllum upplifunum sem slíku lífi fylgja, líka þeim þjáningarfullu.

Þess vegna hef ég lagt áherslu á að mennta mig og þjálfa í ACT, að efla sálrænan sveigjanleika í mínu eigin lífi með aðferðum ACT og þess vegna býð ég þér upp á þetta námskeið svo þú getir beint skjólstæðingum þínum og þér sjálfum/sjálfri í átt að innihaldsríkara og virkara lífi.

Kærleikskveðjur,

Dagsetning

08 feb 2023
Expired!

Tími

4x MIÐ 13:00-16:00. Sjá nánar í lýsingu.
13:00

Verð

120.000,00 ISK
QR Code

Skrá mig á póstlistann

* Nauðsynlegt
Ég hef áhuga á (veldu annað eða bæði)